Gleðidagur!

Já, það kom að því að við áttum gleðilegan dag! Litli sjálfstæðismaðurinn minn er búinn að vera  lasinn alla vikuna og á föstudaginn hringdi bráðamóttöku læknir í mig til að láta mig vita að það hafi komið í ljós streptókokkasýking úr ræktun frá honum síðustu helgi. Hann er kominn á sýklalyf við því og vonandi nær hann að mæta í skólann, eitthvað í næstu viku.

Í dag var hundasýning HRFÍ í reiðhöll Fáks í Víðidalnum. Svali var sýndur í meistaraflokki og fékk fyrstu einkunn, fyrsta sæti, verðugur meistari og alþjóðlegt meistarastig og framhald í tegundarhóp 2. Þar fékk hann ekki sæti, en Standard Schnauzer tík fékk 3 sætið í tegundarhópnum. Glæsilegur árangur samt.

Hvolpurinn hún African Sauda var sýnd í hvolpaflokki og fékk fyrstu einkunn, fyrsta sæti, heiðursverðlaun og framhald í besta hvolp. Þar fékk hún heldur ekki sæti, en ég get svarið það að þegar ég sá hana fara stóra hringinn og sá hvernig hún hreyfir sig sá ég bara Svala fyrir mér í smækkaðri mynd. Hún er stórglæsileg skvísan!!InLove

Ég gæti ekki verið meira stolt af mínum hundi og hvolpinum undan henni en ég er. Sýnendur þeirra beggja stóðu sig með glæsibrag, þrátt fyrir að skuggi hafi hangið yfir mínum sýnanda í dag. Málið er að á föstudaginn fauk upp hurð heima hjá henni og hennar hundar komust út. Þegar hún kom heim biðu tveir þeirra fyrir utan eftir henni, en nýji Poodle hvolpurinn hennar horfinn með öllu. Var hún búin að gera dauðaleit að honum síðan, ásamt því að hringja í lögregluna og í alla sem henni datt í hug að hafa samband við í von um að hann fyndist. Í dag, var hann enn ófundinn, litla skottið og stóð hún samt sína pligt á sýningunni, bæði í gær og í dag. Stóð við það að sýna alla hundana sem hún var búin að skuldbinda sig til að gera, og allir náðu glæsilegum árangri.

Sem betur fer kom hvolpurinn í leitirnar í kvöld, þá hafði hann verið undir góðu yfirlæti í heimahúsi í nágrenninu, búinn að fá að borða kjöt í karrý, og líka hundamat og var hinn kátasti. Ekki kaldur og hrakinn eins og verstu áhyggjur höfðu hvílt á henni og í raun öllum sem vissu. En allt er gott sem endar vel og vissulega var þetta frábær endir á góðum degi.

Nú ætla ég að fara inn í næstu viku, bjartsýn og kát.........ætla að gera góða hluti og ná að vinna eitthvað í leiðinni líka. Hafið það gott kæru vinir og farið vel með ykkur Smile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gott að hvolpurinn kom í leitirnar. Og hamingjuóskir með árangurinn.

kærar kveðjur að norðan, D.

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 2.3.2008 kl. 21:28

2 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég meina það

Gunnar Helgi Eysteinsson, 2.3.2008 kl. 21:38

3 Smámynd: Huld S. Ringsted

Þú mátt sko alveg vera stolt af hundunum þínum, þeir eru ofsalega fallegir!  ég hefði verið svo til í að sjá þá á sýningu.  En gott að þessi hvolpur fannst, það er svo erfitt þegar að þessi grey týnast

Huld S. Ringsted, 2.3.2008 kl. 23:10

4 Smámynd: Helga Dóra

Til lukku með verðlaunavoffa. Langar svo í lítinn skrýtinn voffa. Takk fyrir krúttleg komment hjá mér. Hugsa alltaf til þín þegar ég heyri The Rose með Bett Midler.

Helga Dóra, 3.3.2008 kl. 00:27

5 Smámynd: Ella mannvera Ronja Chihuahua og Lilo Boxer/Labrador

Til hamingju með Svala. batakveðjur til sjálfstæðismannsins

Ella mannvera Ronja Chihuahua og Lilo Boxer/Labrador, 3.3.2008 kl. 07:32

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Æ, til hamingju, en gaman að allt fór vel með hundana. Kær kveðja til þín.

Ásdís Sigurðardóttir, 3.3.2008 kl. 18:11

7 Smámynd: Ásta María H Jensen

Ég er ánægð að þeir fyndu hvað amaði að Fannari og ég vona að sýklayfin nái kokkunum niður.

Til hamingju með árangurinn, bæði á Svala og Saudu, auðvitað gátu mæðgin þetta. Frábært að heyra að hundurinn fannst. 

Ásta María H Jensen, 3.3.2008 kl. 23:20

8 identicon

Ég segi það sama og Anykey, hver gefur hundum karrý ?? 

Knús á þig ljúfust.

Guðrún B. (IP-tala skráð) 4.3.2008 kl. 23:01

9 Smámynd: Bjarney Hallgrímsdóttir

Karrý???

Til lukku með voffann og bjartsýnin fer með mann allavega hálfa leið, ef ekki lengra Batakveðjur til sjálfstæðismannsins...

Bjarney Hallgrímsdóttir, 9.3.2008 kl. 01:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bjarndís Helena Mitchell

Höfundur

Bjarndís Helena Mitchell
Bjarndís Helena Mitchell
Hundadellukerling með meiru. Þetta meira er t.d. börnin mín og fjölskylda, vinnan, vinirnir og svo framvegis.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Gleðileg jól 2009
  • Gleðileg jól 2009
  • ...010_764018
  • ...030
  • ...024_764016

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 33872

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband