23.9.2007 | 00:47
Óvænt símtal...
Loksins hægðist um hjá mér, ég komin heim eftir vinnu í kvöld, komin í náttfötin, með Coke Light við hlið mér og fyrir framan tölvuna. Buin að fara bloggrúnt og gef mér loksins tíma til að blogga smá sjálf.
Þegar ég var að klára í vinnunni í kvöld, hringdi elsti sonur minn í mig. Hann var að trufla, þannig að ég hringdi í hann til baka þegar ég var komin í bílinn og á leiðinni heim. (Sem betur fer er ég með handfrjálsan búnað líka). Honum var mikið niðri fyrir og ég hélt að eitthvað alvarlegt hefði komið fyrir. Sá fyrir mér allskyns vandræði sem hann væri búinn að koma sér í. En nei, ekki alveg svo slæmt var það. Hann var samt reiður, mjög reiður út í stjúpmóður sína sem var að skipa honum fyrir verkum og skikka hann heim fyrir kl. 11 á "LAUGARDAGSKVÖLDI!" Glæpsamlegt alveg hreint. (Hann hefði kannski fengið að vera til 12 -1 hjá mér) En strákur er staddur á LAN móti, eða eitthvað álíka í skólanum hjá sér, undir eftirliti og allt það. Hann þurfti mikið að blása og fá útrás fyrir reiði sinni. Fékk ég að heyra orð eins og; glætan, fokking kerling, biluð, ráðrík og stjórnsöm, framkoma eins og við 10 ára, skilningslaus og kann ekki á ungt fólk.....og kærasta!
Já, kauði er víst kominn með kærustu og er búinn að ákveða að vinna áfram með skólanum, leigja sér herbergi sjálfur, halda samt áfram í skólanum, flytja út frá pabba sínum o.sv.frv.....
Úff, nú voru góð ráð dýr. Ég sé í gegn um hann líka og veit að hann er bara að reyna að hafa þetta allt eftir sínu eigin höfði. Ég beit í tunguna á mér og hlustaði, leyfði honum að fá sína útrás og tala í nokkra hringi. Síðan benti ég honum góðfúslega á að hann byggi hjá pabba sínum, fyrir góðvild hans, konan hans ræður líka ríkjum og að hann verði að fara eftir þeim reglum sem honum eru settar á þeirra heimili. Strákur vildi að ég, mamman með forræðið á honum talaði við hana og legði henni lífsreglurnar með sig. Hmmm, mér fannst það full dónalegt að ætla að fá að ráða þeirra heimilisreglum og þá áttaði kauði sig aðeins.
Til að gera langa sögu stutta, þá lítur út fyrir að hann sé kominn á hálan ís þar sem hann býr núna. Honum var hótað að hann fengi ekki að búa þarna áfram ef hann kæmi ekki heim á tilsettum tíma. Hann ætlar ekki heim á tilsettum tíma, afþví að hann er með "kærustunni" sinni, og á LAN móti og var víst búinn að segja pabba sínum frá því og fá samþykki hans áður.
Ég vona bara að þetta ástand vindi ekki upp á sig og að hann sé að gera sér allt mikið erfiðara fyrir. Fjölbrautarskóli Suðurnesja er ekki nógu góður fyrir hann, hann valdi þetta hlutskipti sjálfur, nú verður hann að vinna úr því líka sjálfur. En það er samt gott að hann tali við mig og leyfi mér að fylgjast aðeins með. Ég held ég skipti mér bara ekki af þessu, fyrr en ég nauðsynlega þarf þess. Strákurinn verður að fara að finna milliveginn aðeins sjálfur held ég.
Jæja, þá er ég búin að pústa þessu frá mér aðeins. Ég held að það sé lítið annað sem ég get gert í bili.
Annars er allt gott að frétta héðan, gengur vel og friður og ró á heimilinu. Bara gaman að því.
Góða nótt
Um bloggið
Bjarndís Helena Mitchell
Tenglar
Tenglar
- MPG-CAP, eykur hestöfl, dregur úr mengun og sparar bensín eykur hestöfl, dregur úr mengun og sparar bensín eða dísel á allar vélategundir!
- http://www.svartskeggs.com
- http://www.hrfi.is
- http://www.kennel-savali.info
- http://www.hundaspjall.is
- http://www.giant.bloggar.is
- http://www.mitchell.is
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Stattu þig stelpa.. Á í svipuðu stríði með unglinginn minn. Við foreldrar hans búum ekki saman. En held að þú sért að tækla hlutina rétt.
Þó svo að allt sé erfitt í augnablikinu, þá bara batna hlutirnir, þegar ungarnir þroskast.
Bestu kveðjur
Fishandchips, 23.9.2007 kl. 01:12
Þetta er greinilega heilmikið umstang..vonandi kemur strákur niður á jörðina.
Ragnheiður , 23.9.2007 kl. 11:24
Mér fannst þú taka hárrétt á þessu, ég þekki þetta þar sem ég bý ekki með pabba stelpnanna minna og á líka 5 fósturbörn sem koma stundum hingað. Trúðu mér það er allt reynt en um að gera að standa fast á hlutunum. Ég segi líka við mínar stelpur að þær eigi að fara eftir reglunum hjá pabba sínum og stjúpu. Eigðu góðan dag Bjarndís mín
Huld S. Ringsted, 23.9.2007 kl. 12:51
Mér sýnist þú vera að höndla þetta rétt. Hjá mér eru tvær fósturdætur, og ekki enn hafa þær held ég kvartað við pabba sinn (sem býr fyrir sunnan), enda er þetta bara nýbyrjað. Þær líka 10 og 12 og ekki á leiðinni alveg strax að fá sér kærasta. Það kemur að því og þá verða eflaust reglurnar á heimilinu "ósanngjarnar" ...
... ég læt bloggheim vita þá
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 23.9.2007 kl. 12:58
Það gengur greinilega á ýmsu með frumburðinn Baddý mín. Veit ekki hvað skal segja við þessu annað en ég vona að hann átti sig fljótlega á því að ekki er hægt að breyta þeim reglum sem fullorðnir eru búnir að ákveða með fljótfærni og reiðiköstum og að það borgar sig að vera kurteis. Betra er að fara samningsleiðina í svona málum, setjast niður og finna leið sem allir eru sáttir við. Við þurfum að gefa unglingunum okkar tækifæri á að sanna sig, við vorum nú einu sinni unglingar líka og ekki alltaf sátt við reglur þeirra fullorðnu. (Man sko vel hvernig þetta var hjá okkur, manstu?) Skil samt að hann varð reiður útí stjúpmóður sína þar sem pabbi hans var búinn að leyfa honum að vera á Lan mótinu. Þau verða að vera samstíga í hvað hann má á meðan hann er hjá þeim annars er hætta á leiðindum. Svo virka hótanir aldrei vel, hvorki á unglinga né aðra. Hvernig myndi okkur líka það ef verið væri að hóta okkur? Það ætti ekki að vera svo erfitt að leysa þetta ef allir eru rólegir og án reiði, (bíta í tunguna og vera rólegur. Ekki alltaf auðvelt!) Og eitt sem má aldrei gera og það er að tala niður til unglinganna, alveg bannað!!! Þá hætta þau algjörlega að hlusta á okkur og gera þveröfugt.
Mér finnst þú einmitt vera að gera það rétta með að skammast ekki í honum. Húgó sálfræðingur er með ýmis góð ráð á sinni síðu. http://www.hugo.is/
Jæja elskan, gangi þér sem best með þetta. Munum ávallt að skilningur og þolinmæði þrautir vinnur allar.
Kær kveðja úr Grafarvoginum.
Nína Margrét (IP-tala skráð) 23.9.2007 kl. 13:04
Flott hjá þér skvís......ég segi eins og þú frábært að hann finnur að hann geti talað við þig um þetta það hjálpar pottþétt að eiga svona fína múttu eins og þig til að fá útrás hjá.
Benna, 23.9.2007 kl. 13:12
Ætli stjúpmóðir hans lesi bloggið þitt?
Ætli sonur þinn lesi bloggið þitt?
Ef svo er þá ertu búinn að leysa mikið...
Gunnar Helgi Eysteinsson, 23.9.2007 kl. 13:28
Vertu hipp vertu kúl vertu ströng vertu góð vertu blíð vertu vond vertu þetta vertu hitt.
Líf foreldra í hnotskurn.
Fyrri partur ævinnar er eyðilagður af foreldrum manns, sá seinni af börnunum !!
Guðrún B. (IP-tala skráð) 23.9.2007 kl. 16:12
Þarna varstu vinur hans, samt er ekki gott að vera of mikill vinur barnanna sinna á sumu tímaskeiði er mér sagt. En þú tókst á þessu fjandi vel sýnist mér , knús á þig.
Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 23.9.2007 kl. 17:47
Það er alltaf gott að blása út kæra nafna:) og gott hjá þér að láta þetta bara í hendurnar á stráknum, hann verður að átta sig sjálfur.
En hafðu það gott vina.
kv. Badda
Bjarney Hallgrímsdóttir, 23.9.2007 kl. 22:53
Mér heyrist að þú höndlir hlutina vel. Ég get látið mig hlakka til þessa tímabils í ævi gelgjunnar.
Jóna Á. Gísladóttir, 29.9.2007 kl. 13:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.