20.9.2007 | 10:34
Já, það er fjör...
Afmælisdagurinn var annasamur. Ég þurfti að sækja afmælisbarnið til borgarinnar og frænda hans líka. Á meðan kraumuðu hryggirnir í ofnpottinum í ofninum og barnsfaðir minn sá um að vakta og sjóða kartöflurnar. Þegar heim var komið var undið sér í að búa til sósu, salat og grænmeti, skræla og brúna kartöflur, skella kökunni í pottinn, og gefa svo liðinu að borða. Sem betur fer hafði ég gert eðalsúkkulaði músina áður en ég fór í bæinn, ásamt því að sinna smá vinnunni minni, versla, þrífa, vaska upp og skipuleggja ýmislegt í gegn um símann.
Strákurinn var búinn að kaupa afmælisgjöfina sjálfur, þar sem ég millifærði á hann og sendi hann af stað að kaupa sér buxur. Svo þegar búið var að borða aðalréttinn, fengum við tvær hjúkrunarkonur í heimsókn frá þjónustu miðstöð rannsóknarverkefna. Komu þær til að taka lífsýni úr báðum eldri strákunum, og mér, vegna ofvirknirannsóknar íslenskrar erfðagreiningar. Úff, miðað við stælana, þá fór ekki á milli mála hver væri ofvirki einstaklingurinn hér á bæ
Mikið er ég búin að fá nóg af þessum rannsóknum öllum. Ég held að ég hafi aldrei skorast undan því að taka þátt í þeim, og ég hef tekið þátt í þeim ófáum. En ætti ekki að vera þak yfir fjölda rannsókna sem hver einstaklingur getur tekið þátt í? Varla er hægt að nota endalaust sama genapollinn í allar rannsóknir?
Jæja, hér var hlegið og mikið fjör langt fram á nótt hjá unglingunum. Svo komst ég að því í morgun að yngri drengirnir báðir höfðu lánað rúmfötin sín til afmælisbarnsins og hans gesti, og sofið nánast í kuldanum í alla nótt sjálfir! Uss, bara. Hér eru til teppi og það hefði verið minnsta mál að redda þessu, en ég hugsaði greinilega ekki út í alla hluti sjálf í gær!
Eftirrétturinn rann ljúft niður og upphófst enn meira fjör og galsi. Sumir eru orðnir svo miklir töffarar að það hálfa væri hellingur Ég er samt mest hrædd um að afmælisbarnið sé búinn að ákveða sig með að hætta í skólanum og fara að vinna. Ég reyndi að tala um fyrir honum í gær.
Minna hann á að þetta sé eins og að vinna í 3-4 mánuði, fjárfesta í vinnugallanum og alles, en nenna svo ekki að sækja launin sín! Strákur þóttist skilja þetta allt og átta sig á því að hann hafi lífið sitt og framtíð í lúkunum.
Þóttist skilja það að ef hann gerði þetta yrði grundvöllur hans til búsetu í bænum farinn og að hann yrði að flytja heim aftur.
Þóttist líka skilja það að næst þegar hann ætlaði í skóla, þá væri hann búinn með allan trúverðugleika og að hann gæti ekki farið fram á stuðning til þess aftur og í 3ja sinn og að þá yrði það mikið erfiðara að framkvæma skólagöngu.
Sagðist líka átta sig á því að það yrði miklu erfiðara að byrja aftur í skóla eftir allan þennan tíma, og að þurfa þá að byrja upp á nýtt.
Hann samþykkti að betra væri að klára önnina, fá einingarnar metnar og gera svo það sem honum sýnist og geta svo haldið áfram þar sem frá var horfið og ekki á byrjunarreit.
Hvað sem öllum þessum atriðum líður, er hann samt búinn að ákveða, að því er virðist, að sækja um vinnu með frænda sínum. Drengurinn er einfaldlega ekki að átta sig á raunveruleikanum við þessa ákvörðun, hvernig ætlar hann að flytja heim og vinna í bænum, bílprófs og bíllaus? Ég ætla ekki og get ekki verið einkabílstjórinn hans á eigin kostnað. Núið og straxið er bara það sem kemst að. Úff, nú eru góð ráð dýr..... Mér líður eins og að ég sé að reyna að tala um fyrir vindinum....
Frændur sofa og fá skutl í bæinn á eftir. Einhver ráð? Hjálp!!!
Um bloggið
Bjarndís Helena Mitchell
Tenglar
Tenglar
- MPG-CAP, eykur hestöfl, dregur úr mengun og sparar bensín eykur hestöfl, dregur úr mengun og sparar bensín eða dísel á allar vélategundir!
- http://www.svartskeggs.com
- http://www.hrfi.is
- http://www.kennel-savali.info
- http://www.hundaspjall.is
- http://www.giant.bloggar.is
- http://www.mitchell.is
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Láttu hann reka sig á, ég man að maður lærði ekkert nema reka sig á. En reyndu samt að segja honum að mennt sé máttur og það sé = peningar. Við virðumst öll þurfa að reka okkur á til þess að læra af reynslunni. Gangi þér samt vel dúlla.
Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 20.9.2007 kl. 11:29
Veistu Baddý. það er voða lítið hægt að ráðleggja í svona stöðu. Hann er auðvitað líka alltaf einstaklingur með skoðanir. Og það er alveg spurning um að leyfa honum bara að fara að vinna. Láttu hann þá lika borga heim, ( leigu ) taka þátt í matarkostnaði, interneti og annað sem hann þarf að gera. Hann verður að skilja að frelsi kostar. Lífið kostar. 'Eg er ekki svo viss um að pásan frá skóla yrði þá lengri en ein önn. En hann er þá líka búinn að fá reynsluna af því að takast á við lífið 17 ára. Þú skutlar ekki, sækir ekki, hann tekur einfaldlega strætó eða borgar sitt bílpróf sjálfur.
Call me hon.. ég er með nokkrar svona í viðbót sem ég ætla ekki að þylja upp hérna.
Guðrún B. (IP-tala skráð) 20.9.2007 kl. 11:42
Sammála þeim hérna fyrir ofan, ég er sjálf búin að segja minni eldri að ef hún hættir í skóla etir grunnskóla þá annaðhvort borgi hún heim eða flytji út, þessi elska veit að mamma hennar meinar það sem hún segir svo ég held að hún hugsi sig tvisvar um (gott að búa á hótel mömmu) Gangi þér vel, Knús á þig
P.S Hvolpar eru orðnir æðislegir, farnir að brasa við að labba og aðeins farið að rifa í augun, ofsalega gaman að fylgjast með breytingunni á þeim og hvað þeir stækka!!
Huld S. Ringsted, 20.9.2007 kl. 12:41
Systir mín á ofvirkan strák og hefur reynt bókstaflega allt, með ærið misjöfnum árangri. En nú vinnur strákur og allt virðist ganga vel. Ég get ekkert ráðlagt, bara sendi þér baráttukveðjur og vona að allt fari vel.
Jenný Anna Baldursdóttir, 20.9.2007 kl. 14:02
Láta hann reka sig á, eina sem dugar þau vilja hvort eð er alltaf finna upp hjólið við vorum svona líka. Mundu bara að láta hann bjarga sér, ekki taka lán fyrir hann eða skrifa uppá neitt. Þau verða að læra þetta the hard way. Þekki svona aðstæður doldið vel.
Ásdís Sigurðardóttir, 20.9.2007 kl. 20:11
En mikið djö. ertu dugleg að elda. :):)
Ásdís Sigurðardóttir, 20.9.2007 kl. 20:15
Magga Ö og Guðrún B sögðu það sem ég ætlaði að skrifa...
Gunnar Helgi Eysteinsson, 21.9.2007 kl. 05:36
Takk allir, þetta er bara það sem ég hef verið að reyna að hamra inn hjá drengnum. Ég byrjaði aðeins í bílnum í gær, og þá gall í gutta; "já mamma, ég er búinn að heyra þessa ræðu 1000 sinnum, nenni ekki að hlusta einu sinni enn!" Þannig að ég hætti bara í bili.
Huld: gaman að frétta af hvolpunum, þetta er svo sannarlega fljótt að ske, og það liggur við að manni finnst maður missa af einhverju, ef maður lítur undan í smástund.
Ásdís: Takk fyrir hrósið, mér finnst líka gaman að elda, stundum...
Bjarndís Helena Mitchell, 21.9.2007 kl. 07:27
Magga Ö og Guðrún B og Ásdís og Gunnar said it all... Þar er líka erfitt að vera unglingur... Þú ert góð í svona multitasking!
Sigríður Hafsteinsdóttir, 21.9.2007 kl. 11:34
Hæ hæ.
Veit ekki hvað skal ráðleggja þér annað en að standa hörð á þínu við hann en jafnframt vera vinur sem vill honum vel. Átti einu sinni í smá basli við unglinginn minn, hann varð eitt sinn latur við að vinna. Þegar mér ofbauð letinn þá hætti ég að þvo af honum og tilkynnti honum það að hann fengi hrein föt þegar hann væri aftur farinn að starfa og hálfum mánuði seinna var hann kominn í vinnu. Stundum þurfa róttækar aðgerðir til að hrista uppí ungdómnum. Gangi þér sem allra best.
Barráttu kveðjur úr Grafarvoginum.
Nína Margrét (IP-tala skráð) 21.9.2007 kl. 19:13
Sko, þetta er alltaf erfitt, en ég myndi bara láta hann ákveða þetta, ef hann vill hætta, þá gjörðu svo vel, en viltu vera í þeim sporum eftir x ár þegar þig langar til að verða, segjum verkfræðingur, að þá þarf hann að taka stúdentinn fyrst, með jafnvel mikið yngri krökkum. Ég varð stúdent 39 ára og mikið bölvaði ég oft að hafa verið asni í denn og ekki farið í menntó Þetta kemur alltaf í bakið á manni síðar. Svo er líka annar punktur, og ég veit, ekki vinsælt þegar ég segi þetta, til hvers að láta krakkana vera í skóla ef þau hafa engan áhuga, mæta "bara fyrir mömmu og pabba", læra ekkert í skólanum, eru bara að eyða tímanum þar í vitleysu. Af hverju ekki að leyfa þeim að hætta og fara svo seinna?
Ég veit að nú tala ég í kross, er með og á móti, en það er bara svo erfitt að ráðleggja. Ég hef sem sagt alveg fullt af skoðunum og þær stangst nú bara nokkurð oft á:) Vona þú skiljir hvað ég er að meina
En til lukku samt með frumburðinn og hafðu það rosalega gott næstum nafna mín
kv. Badda
Bjarney Hallgrímsdóttir, 23.9.2007 kl. 00:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.