Góð ráð við.....



Heilablóðfall : Munið ÞRJÚ FYRSTU SKREFIN




Vinur minn sendi mér þetta og hvatti til að senda áfram til að koma þessum áríðandi skilaboðum á framfæri.

Hvernig þekkir maður heilablóðfall:

vinkona mín sem var að fá heilablóðfall hrasaði við og datt og hún sannfærði viðstadda um að það væri allt í lagi með sig, hún hefði bara hrasað út af nýju skónum sínum. Síðar um kvöldið hringdi eiginmaður hennar og sagði að hún hefði látist og dánarorsökin væri heilablóðfall. Ef þeir sem voru með henni hefðu þekkt einkenni heilablóðfalls þá hefði kannski verið hægt að bjarga henni. Heilablóðfall dregur suma til dauða en lamar aðra.
Taktu þér smástund til að lesa eftirfarndi:

Taugasérfræðingur segist geta snúið við afleiðingum heilablóðfalls ef hann fær sjúklinginn nógu fljótt, galdurinn sé að greina blóðfallið og koma sjúklingnum á sjúkrahús innan þriggja klukkustunda.

HVERNIG HÆGT ER AÐ ÞEKKJA HEILABLÓÐFALL þrjú mikilvæg skref sem þú skalt muna:
Sá sem vill komast að því hvort um heilablóðfall er að ræða á að spyrja þriggja einfaldra spurninga:

B* Biddu viðkomandi að BROSA.

T* Biddu manneskjuna að TALA, SEGJA EINFALDA SETNINGU Í SAMHENGI (sólin skín í
dag en í gær var rigning)
L* Biddu hana/hann að LYFTA BÁÐUM HANDLEGGJUM UPP

{ ath : Annað merki um heilablóðfall: Biddu viðkomandi að reka út úr sér tunguna og ef hún er bogin til annarrar hliðarinnar getur það líka verið merki um heilablóðfall }

Ef viðkomandi á í vandræðum með eitt eða fleiri af þessum fyrirmælum hringdu þá í 112 og lýstu einkennunum.

Hjartasérfræðingur hefur sagt að ef allir sem fá þetta bréf sendi það til 10 manns muni það bjarga amk einu mannslífi. Wink

vona að þetta hafi sigtast inn að einhverju leiti Wink

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Klapp fyrir þér Baddý, gott að fá þessa áminningu. 

Guðrún B. (IP-tala skráð) 13.9.2007 kl. 21:26

2 Smámynd: Huld S. Ringsted

Frábær áminning, ekki vissi ég hvernig einkennin væru. Takk

Huld S. Ringsted, 13.9.2007 kl. 21:41

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ok þá veit ég það.  Takk!

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.9.2007 kl. 23:23

4 identicon

Fínt að fá þessa ábendingu og mun ég koma henni á framfæri.

Takk Baddý.

Kær kveðja úr Grafarvoginum.

Nína Margrét (IP-tala skráð) 14.9.2007 kl. 00:20

5 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Takk krúsla. 

Anna Einarsdóttir, 14.9.2007 kl. 17:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bjarndís Helena Mitchell

Höfundur

Bjarndís Helena Mitchell
Bjarndís Helena Mitchell
Hundadellukerling með meiru. Þetta meira er t.d. börnin mín og fjölskylda, vinnan, vinirnir og svo framvegis.
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Gleðileg jól 2009
  • Gleðileg jól 2009
  • ...010_764018
  • ...030
  • ...024_764016

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 34022

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband