Hugmyndir óskast....?

Já, enn er rólegt í tíðinni hjá mér, og ég er að reyna að njóta þess á meðan rólegheitin standa yfir. Mig langar að efla reynslu mína í matreiðslunni og prufa hluti sem ég hef ekki gert áður. Í gærkvöldi gerði ég heiðarlega tilraun til að búa til "sykurminni" berjasultu. Hún bragðast vel, en er þunn og það vantar pektínið í hana, enda gerð úr frosnum berjum og engir stilkar eða blöð með í henni.

Mig langar í rifs, og prófa að búa til rifsberjahlaup í ár. Rababara líka og bláber. Ef þið þekkið einhvern sem er með of mikið magn af þessum ávöxtum, endilega að láta vita.

Svo vantar mig hugmyndir að réttum sem eru úr grænkáli. Litli sjálfstæðismaðurinn minn kom heim með uppskeru af rófum og grænkáli í gær. Ég fékk einn salathaus líka og steinselju. En mikið af grænkáli. Eigið þið góðar uppskriftir fyrir þetta? Mig langar að nýta þetta, ekki að það skemmist og því verði hent.

Fríða Feykirófa er öll að koma til, er búin að þyngjast um 127 gr síðan hún kom til okkar og er bara kát og ber nafn með rentu. Að vísu er hún svolítið frek að fá að lúlla í fanginu á manni, þannig að áðan kallaði ég hana Fríðu Feykifrekjurófu. En hún er svo mikið krútt að henni er nánast fyrirgefið fyrirfram.  Ég er bara að herða skrápinn og leyfi henni ekki að komast upp með þetta. Við eigum alveg sökina á þessu, þar sem hún er svo lítil að okkar viðbrögð voru að vernda hana til hins ítrasta. Ég held að það sé alveg eðlilegt, sérstaklega til að byrja með. En ég á að vita betur og ætla að taka á þessu strax. Hún verður ekki töskuhundur, svo mikið er víst.

Jæja, best að fara að gera eitthvað. Knús á línuna 001

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Ég sit undir litla stráknum mínum, enda öll marin á fótum eftir hann. Hann er bara 35 kg þessi elska. Hann vill nú bara láta sitja með sig ef hann verður skelkaður, hann er óttalega huglaus.

Hún er falleg sú stutta.

Kann engar uppskriftir af káli en er með rifs í garðinum sem ég geri ekkert með.

Ragnheiður , 8.8.2008 kl. 14:49

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

ÉG get örugglega reddað rifsi, láttu mig vita ef þú vilt koma austur. Kann ekki mikið af uppskriftum með grænkál, nema helst að rífa það smátt í salat eða sjóða með kjötfarsi.  Með rófur þá er voða gott að rifa þær niður og setja rúsínur saman við og smá vinager, rosa gott að borða eintómt.  Kveðja´

Ásdís Sigurðardóttir, 8.8.2008 kl. 16:43

3 identicon

Uppskriftir með grænkál eru af skornum skammti, iðulega er það ferskt skorið niður þá smátt með öðru grænmeti og notað í salat, eða soðið með smá salti og sett í frost. Getur notað það þá út í lasagne t.d. omelettu líka o.s.frv. Reyndu að borða það frekar ferskt því það missir mikið af bætiefnum við soðningu, það er svo skelfilega hollt. Gangi þér vel dúlla, feykirófan er alger rúsína.

Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 9.8.2008 kl. 18:47

4 identicon

Hmm... ég er gjörsamlega hugmyndasnauð, en kanski getur þú farið inn á vefinn hennar Sollu á grænum kosti og fundið einhverja uppskift sem hentar þér.

Knus úr klettaborg.

Guðrún B. (IP-tala skráð) 9.8.2008 kl. 23:11

5 identicon

þú getur líka prufað að kíkja hérna.

http://matarbitinn.blog.is/blog/matarbitinn/ 

Guðrún B. (IP-tala skráð) 9.8.2008 kl. 23:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bjarndís Helena Mitchell

Höfundur

Bjarndís Helena Mitchell
Bjarndís Helena Mitchell
Hundadellukerling með meiru. Þetta meira er t.d. börnin mín og fjölskylda, vinnan, vinirnir og svo framvegis.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Gleðileg jól 2009
  • Gleðileg jól 2009
  • ...010_764018
  • ...030
  • ...024_764016

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband